STAÐAN

01
ÍA
3
9
02
FH
3
7
03
Valur
3
6
04
Stjarnan
3
5
05
Keflavík
3
4
06
Breiðablik
3
4
07
KR
3
4
08
Fram
3
3
09
Selfoss
3
3
10
Fylkir
3
2
11
ÍBV
3
1
12
Grindavík
3
1
nánar

Hvernig líst þér á nýja þjálfarateymið?

Mjög vel

(12)

Frekar vel

(1)

Veit ekki

(0)

Frekar illa

(0)

Mjög illa

(0)

Næstu Leikir

Fylkir
H
Valur
FH
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Fram
Selfoss
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Breiðablik
KR
Ú
Fylkir
nánar

Nýjustu Úrslit

Fylkir
0-1
ÍA
Stjarnan
1-1
Fylkir
Fylkir
1-1
Keflavík
Breiðablik
3-1
Fylkir
Fylkir
3-3
BÍ/Bolungarvík
Fylkir
1-2
ÍBV
nánar

Tímabilið 2008

Tímabilið 2008 var það fyrsta þar sem 12 lið spiluðu í Úrvalsdeild og því deildarleikirnir 22 í stað 18 áður.

Líkt og árið 2007 spáðu fyrirliðar og þjálfarar Fylki sjötta sæti. Fylkismenn fussuðu yfir spánni enda ætluðu þeir sér að vera í efri hlutanum líkt og árið áður

Liðið endaði í 9 .sæti of fjórum stigum frá falli sem voru gríðarleg vonbrigði og ekki voru vonbrigðin minni þegar Fylkir tapaði annað árið í röð fyrir Fjölni í undanúrslitum Visa bikarsins.

Fylkir tók þátt í Intertoto keppninni og mætti FK Riga frá Lettlandi í 1. umferð. Eftir góðan 1-2 sigur í Lettlandi fóru Fylkismenn illa að ráði sínu í síðari leiknum á Laugardalsvelli og töpuðu 0-2. FK Riga fór því áfram samanlagt 3-2.

Fylkir varð síðasta íslenska félagið til að taka þátt í Intertoto keppninni en hún var leikin í síðasta skipti sumarið 2008.

Leifur Garðarsson þjálfaði liðið á sínu þriðja tímabili. Jón Þórir Sveinsson var aðstoðarþjálfari. Þeir voru báðir reknir úr starfi þann 28. ágúst og degi síðar tók Sverrir Sverrisson við sem aðalþjálfari út leiktíðina. Honum til aðstoðar voru Finnur Kolbeinsson og Páll Einarsson.

Aðalfyrirliði liðsins var Ólafur Stígsson.

Annað árið í röð var markahæsti maður Fylkis aðeins með 6 mörk í heildina. Jóhann Þórhallsson skoraði mest, 4 í deild og 2 í bikar.

Liðið lék alls 28 leiki á tímabilinu, 22 í deild, 4 í bikar og 2 í Intertoto keppninni

Fjalar Þorgeirsson var eini leikmaðurinn sem lék alla 28 leikina.

Valur Fannar Gíslason var valinn leikmaður ársins og Björn Orri Hermansson efnilegastur.

Valur Fannar Gíslason var einnig valinn leikmaður ársins að mati stuðningsmanna

Leikmannabreytingar fyrir tímabilið:

Komnir:
Allan Dyring frá FH
Ásgeir Börkur Ásgeirsson (til baka úr láni)
David Hannah frá Cowdenbeath (Skot) (til baka úr láni)
Ian Jeffs frá ÍBV
Ingimundur Níels Óskarsson frá KR (31.7)
Jóhann Þórhallsson frá KR
Viðar Guðjónsson frá Víkingi R.

Farnir:
Albert Brynjar Ingason í Val
Arnar Þór Úlfarsson í Selfoss (lán)
Ásgeir Börkur Ásgeirsson í Selfoss (17.7) (lán)
Christian Christiansen í FC Hjörring (Dan)
David Hannah í Cowdenbeath (Skot) (lán)
David Hannah í Fjarðabyggð (17.7)
Einar Pétursson í Leikni R. (lán)
Freyr Guðlaugsson í Hött (31.7) (lán)
Guðni Rúnar Helgason í Stjörnuna (31.7)
Jóhann Ólafur Sigurðsson í Selfoss (lán)
Páll Einarsson í Hvöt
Sigurður Helgi Harðarson í Aftureldingu (lán)
Viðar Guðjónsson í Fram (26.7)

Landsbankadeildin 2008:

Sæti Félag L U J T Sk Fe Mm Stig Athugasemdir
1 Fimleikafelag hafnafjordur.png FH 22 15 2 5 50 25 +25 47 Meistaradeild Evrópu
2 Keflavik ÍF.gif Keflavík 22 14 4 4 54 31 +23 46 Evrópudeildin
3 Knattspyrnufélagið Fram.png Fram 22 13 1 8 31 21 +10 40
4 KR Reykjavík.png KR 22 12 3 7 38 23 +15 39
5 Valur.png Valur 22 11 2 9 34 28 +6 35
6 Fjölnir.png Fjölnir 22 10 1 11 39 33 +6 31
7 UMFG, Grindavík.png Grindavík 22 9 4 9 29 36 -7 31
8 Breidablik.png Breiðablik 22 8 6 8 41 36 +5 30
9 Fylkir.png Fylkir 22 6 4 12 24 40 -16 22
10 Þróttur R..png Þróttur 22 5 7 10 28 46 -18 22
11 HK-K.png HK 22 5 3 14 26 47 -21 18 Fall í 1. deild
12 ÍA-Akranes.png ÍA 22 2 7 13 18 46 -28 13

Visa bikarinn 2008:

32- liða úrslit: Þróttur - Fylkir 4-6 eftir vítaspyrnukeppni
16-liða úrslit: Víðir - Fylkir 1-4
8-liða úrslit: Haukar - Fylkir 0-1 (eftir framlengingu)
Undanúrslit: Fylkir - Fjölnir 3-4

Leikmenn 2008:

Fyrirliðar: Ólafur Stígsson (19), Valur Fannar Gíslason (8), Guðni Rúnar Helgason (1)
Mörk í deildarbikarnum: Dyring 3, Hannah 1, Jeffs 1, Kjartan Andri 1, Kjartan Ágúst 1, sjálfsmörk 2.
Gul spjöld (57): Jeffs 8, Gravesen 8, Þórir 8, Valur 5, Kjartan Ágúst 4, Ólafur 4, Leifur 4, Dyring 4, Andrés 3, Hermann 2, Jóhann 2, Guðni 1, Kjartan Andri 1, Kristján 1, Víðir 1, Ásgeir Börkur 1.
Rauð spjöld (7): Ólafur 2, Kristján 1, Gravesen 1, Valur 1, Hermann 1, Leifur 1.